HTL

Algengar spurningar

Hér svörum við því sem viðskiptavinir spyrja okkur mest um: Loop eyrnatappa, sundvörur, hjálpartækjaleigu, sendingar og skil. Smelltu á spurningu til að sjá svarið.

Ítarlegri leiðbeiningar um Loop

Loop eyrnatappar

Loop eyrnatappar — grunnurinn

Loop eru endurnýtanlegir eyrnatappar sem lækka hávaða í kringum þig án þess að loka alveg á hann. Í stað þess að deyfa allt jafnt hleypa þeir hljóði í gegn á lægri styrk, svo þú heyrir enn samtöl og umhverfið. Þeir eru úr sílikoni, koma með fjórum stærðum af töppum og hulstri, og eru hannaðir til að nota aftur og aftur. Sjá allar Loop vörur.

Loop nota hringlaga rás inni í tappanum sem hægir á hljóðbylgjunum áður en þær ná að hljóðhimnunni. Sílikontappinn þéttir eyrað og hringurinn stýrir því hversu mikið sleppur í gegn. Útkoman er að hljóðstyrkurinn lækkar en hljóðmyndin helst nokkuð eðlileg — tónlist hljómar áfram eins og tónlist og raddir eins og raddir, bara lægra.

Það fer eftir gerð. Loop Dream dempar 27 dB (SNR), Quiet 2 dempar 24 dB, Experience 17 dB og Engage 2 16 dB. Loop Switch 2 býður þrjár stillingar: 20, 23 og 26 dB. SNR-talan er staðlað mat á því hversu mikið tappinn lækkar hávaða þegar hann situr rétt. Sjá fullan samanburð.

SNR stendur fyrir Single Number Rating og er evrópskur staðall sem segir hversu mörg desíbel heyrnarhlíf lækkar hávaða að meðaltali. Hærri tala þýðir meiri dempun. SNR 24 þýðir að hávaði lækkar um því sem næst 24 dB þegar tappinn situr rétt í eyranu. Talan er mæld við staðlaðar aðstæður, svo raunveruleg dempun ræðst líka af því hversu vel tappinn passar.

Nei, og það er viljandi. Loop lækka hávaða en loka ekki alveg á hann. Þú heyrir áfram vekjaraklukku, dyrabjöllu, barn sem kallar og samtöl, bara lægra. Engir eyrnatappar útiloka hljóð algerlega; jafnvel öflugasta heyrnarvörn hleypir einhverju í gegn, meðal annars í gegnum höfuðkúpuna sjálfa.

Já. Loop eru hannaðir til að nota aftur og aftur, ólíkt froðutöppum sem endast í örfá skipti. Sílikontapparnir eru teknir af og þrifnir, og þeim er skipt út eftir þörfum. Loop mælir með að skipta um tappana á þriggja til sex mánaða fresti, eða fyrr ef þeir eru farnir að slitna eða missa mýkt.

Já. Loop eyrnatappar eru vottuð heyrnarvörn og dempunin er mæld samkvæmt stöðlum. Það þýðir að SNR-talan á umbúðunum er mæld, ekki áætluð. Vottun segir til um dempunina sjálfa, hún segir ekkert um hvort tiltekin gerð henti þínum aðstæðum, og það ræðst af því hvað þú ert að reyna að dempa.

Með flestum Loop gerðum fylgir eitt sett af eyrnatöppum, fjórar stærðir af sílikontöppum (XS, S, M og L) og hulstur á lyklakippu. Með Loop Dream fylgja einnig tvöfaldir memory foam tappar í öllum fjórum stærðunum. Með Plus-útgáfunum fylgir Loop Mute aukahlutur sem eykur dempunina. Loop fyrir börn kemur með töppum frá XS upp í M.

Þú færð Loop hjá HTL, bæði á htl.is og í versluninni okkar í Hátúni 12, 105 Reykjavík. Við kaupum beint frá Loop í gegnum B2B-verslun framleiðandans og eigum allar helstu gerðir á lager. Við sendum um allt land með Dropp og þú getur líka sótt pöntunina í verslunina.

Já. Allar Loop vörur hjá HTL eru keyptar beint frá framleiðandanum í gegnum B2B-verslun Loop. Þú færð upprunalega vöru með vottaðri heyrnarvörn, í upprunalegum pakkningum og með þeim töppum og hulstri sem eiga að fylgja. Við seljum engar eftirlíkingar.

Verðið fer eftir gerð og er alltaf uppfært á vörusíðunum sjálfum. Engage 2, Experience og Quiet 2 eru ódýrustu gerðirnar, Plus-útgáfurnar og Loop Dream liggja þar fyrir ofan og Switch 2 er dýrust enda þrír tappar í einum. Skoðaðu verð á öllum Loop vörum.

Margir viðskiptavinir okkar nota Loop vegna þess að þeir eru næmir fyrir hávaða, hvort sem er í fjölmenni, á vinnustað eða heima. Loop lækka áreitið án þess að loka þig af. Við viljum þó taka skýrt fram: Loop eru heyrnarhlífar, ekki lækningatæki, og koma ekki í stað mats eða meðferðar fagfólks.

Hvaða Loop hentar mér?

Byrjaðu á því hvað þú vilt dempa. Fyrir svefn er Loop Dream mest dempandi, fyrir einbeitingu og ró Quiet 2, fyrir samtöl í hávaða Engage 2 og fyrir tónleika Experience. Switch 2 sameinar þrjár stillingar í einum tappa ef þú vilt eina lausn fyrir allt. Farðu í gegnum valið skref fyrir skref.

Loop Dream dempar mest af þeim gerðum sem HTL selur, 27 dB (SNR). Næst kemur Quiet 2 með 24 dB. Loop Switch 2 nær 26 dB í Quiet-stillingu. Experience dempar 17 dB og Engage 2 16 dB — þær eru viljandi minna dempandi því þær eiga að halda röddum og tónlist skýrum.

Ef þú veist ekki hvar á að byrja ræðst valið af algengustu aðstæðunum þínum. Sefurðu illa vegna hávaða velurðu Dream eða Quiet 2. Ertu í fjölmenni, með börn eða í opnu vinnurými velurðu Engage 2. Ferðu mikið á tónleika velurðu Experience. Ef aðstæðurnar eru margar er Switch 2 öruggasta fyrsta parið.

Engage 2 er stillt á raddir og dempar 16 dB, svo samtöl haldast skýr í hávaða. Experience dempar 17 dB og er stillt á tónlist, svo hljómurinn helst heill á tónleikum. Munurinn liggur ekki í dempuninni heldur í því hvaða tíðnum er hleypt í gegn.

Plus-útgáfurnar eru sömu eyrnatappar en með Loop Mute aukahlut í pakkanum. Mute smellur framan á tappann og eykur dempunina þegar þú þarft meira næði. Engage 2 Plus fer úr 16 dB í 25 dB með Mute, og Experience 2 Plus bætir við 3 dB. Þú tekur Mute af þegar þú vilt heyra betur.

Já, flestir komast af með eitt par. Switch 2 er beinlínis hannaður fyrir það með þremur stillingum. Af sérhæfðu gerðunum er Engage 2 sveigjanlegasta valið fyrir daglegt líf, en hún dempar ekki nóg fyrir þá sem eiga erfitt með svefn vegna hávaða. Þá borgar sig að eiga Dream eða Quiet 2 líka.

Allar gerðir koma með fjórum stærðum af töppum, XS til L, og XS er gerð fyrir minni eyru. Quiet 2 er mjúkust í gegn því tappinn er allur úr sveigjanlegu sílikoni. Loop Dream er með memory foam töppum sem mótast að eyranu. Ef XS er of stór má kaupa auka tappa og prófa sig áfram.

Loop Dream er mest dempandi gerðin, 27 dB (SNR), og er hönnuð fyrir svefn með memory foam töppum sem sitja flatir í eyranu. Quiet 2 er næstmest dempandi með 24 dB og mýkri í gegn. Hvorug lokar alveg á hrotur, en báðar lækka þær umtalsvert. Lestu meira um Loop fyrir svefn.

Samanburður á Loop gerðum

Quiet 2 dempar 24 dB og lokar á umhverfið: svefn, lestur, einbeiting, ferðalög. Engage 2 dempar 16 dB og heldur þér inni í samtalinu: fjölskyldulíf, opin vinnurými, fjölmenni. Spurningin er einföld — viltu ró eða viltu vera með? Sjá fullan samanburð.

Dream dempar meira (27 dB á móti 24 dB) og er með memory foam töppum sem sitja flatir í eyranu, svo hún hentar betur þeim sem sofa á hliðinni. Quiet 2 er mýkri í gegn, ódýrari og hentar líka á daginn. Ef svefn er eina ástæðan velurðu Dream.

Báðar dempa 17 dB (SNR) og eru stilltar á tónlist. Munurinn er sá að Plus-útgáfunni fylgir Loop Mute, sem bætir við 3 dB þegar þú þarft meira, og memory foam tappar til viðbótar við sílikontappana. Ef þú ferð á mjög háværa viðburði borgar Plus sig.

Báðar dempa 16 dB (SNR). Engage 2 Plus kemur með Loop Mute sem eykur dempunina upp í 25 dB þegar hann er settur á. Þú færð þannig tvær stillingar í einni vöru: opið fyrir samtöl og lokað fyrir næði. Ef þú skiptir oft á milli aðstæðna er Plus betri.

Switch 2 gefur þrjár stillingar í einum tappa, 20, 23 og 26 dB, og hentar þeim sem fer á milli vinnu, tónleika og svefns. Sérhæfð gerð er ódýrari og Loop Dream dempar meira fyrir svefn en Switch nær. Switch er valið ef þú vilt eitt par sem gerir allt.

Engage 2, Experience og Quiet 2 eru á sama grunnverði og eru ódýrastar. Plus-útgáfurnar og Loop Dream eru þar fyrir ofan, og Switch 2 er dýrust enda þrír tappar í einum. Verð breytast, svo skoðaðu alltaf núgildandi verð á Loop vörusíðunum.

Froðutappar dempa hátíðni miklu meira en lágtíðni, svo hljóðið verður dumbt og þú missir skýrleika. Þeir endast líka örfá skipti. Loop dempa jafnar yfir tíðnisviðið, svo raddir og tónlist halda lögun sinni, og þau eru endurnýtanleg með skiptanlegum töppum.

Heyrnartól með virkri hljóðdeyfingu nota rafhlöðu og hljóðnema til að vinna á móti lágtíðnihávaða, og þau spila tónlist. Loop eru óvirk, þurfa enga hleðslu, eru lítil og má sofa með þeim. Heyrnartól taka betur á stöðugum vélarhávaða; Loop henta betur í daglega notkun og svefn.

Loop Dream og Switch 2 seljast mest hjá okkur, og Engage 2 þar á eftir. Það segir þó ekkert um hvað hentar þér — vinsældirnar endurspegla einfaldlega að svefn og sveigjanleiki eru algengustu ástæðurnar. Sjá mest seldu Loop vörurnar.

Loop eftir aðstæðum

Loop fyrir svefn

Loop Dream er hannaður fyrir svefn og dempar mest, 27 dB (SNR). Tapparnir eru úr memory foam, sitja flatir í eyranu og þrýsta ekki á þegar þú snýrð þér. Quiet 2 er næstbesti kosturinn með 24 dB og mýkri sílikontappa. Báðar henta heilli nótt. Sjá nánar.

Já. Loop Dream er sérstaklega hannaður fyrir það — tappinn stendur ekki út úr eyranu heldur situr flatur, svo koddinn þrýstir ekki á hann. Quiet 2 virkar líka vel á hliðinni því hann er allur úr mjúku sílikoni. Ef þú finnur fyrir þrýstingi er stærðin líklega of stór; prófaðu næstu stærð fyrir neðan.

Já ættir að gera það. Loop lækka hljóð en loka ekki á þau, svo vekjaraklukka heyrist áfram, bara lægra. Margir hækka í klukkunni fyrstu næturnar eða nota titring í símanum eða úrinu til öryggis. Prófaðu heima fyrstu nóttina frekar en nóttina fyrir mikilvægan morgun.

Þú heyrir í barninu, en lægra. Loop lækka hljóðstyrk í stað þess að loka á hann, svo grátur eða kall berst áfram. Ef þú ert einn með ungbarn og vilt vera viss er Engage 2 öruggara val en Dream, því hún dempar aðeins 16 dB og hleypir röddum betur í gegn.

Loop lækka hrotuhljóð en útiloka þau ekki. Dream dempar 27 dB og Quiet 2 24 dB, sem gerir mikinn mun á lágtíðnihljóði eins og hrotum, en þú gætir enn heyrt þær daufar. Margir nota líka hvítan hávaða með. Loop meðhöndla ekki hrotur hjá þeim sem hrýtur — þær gagnast þeim sem liggur við hliðina.

Memory foam er svampefni sem mýkist við líkamshita og mótast að eyranu. Í Loop Dream þýðir það betri þéttingu og meiri dempun en sílikon gefur, auk þess sem efnið er mýkra undir kodda. Þú þarft að halda tappanum inni í um fimm sekúndur meðan hann þenst út — annars nærðu ekki fullri dempun.

Já, Loop eru hönnuð fyrir samfellda notkun yfir nótt. Haltu töppunum hreinum, skiptu um þá á þriggja til sex mánaða fresti og taktu pásu ef þú finnur fyrir ertingu eða kláða. Ef þú færð verk, bólgu eða útferð úr eyra skaltu hætta notkun og leita til læknis.

Nánast alltaf er það stærðin. Ef tappinn þéttir ekki alveg sleppur hljóð fram hjá honum og dempunin hrynur. Prófaðu næstu stærð fyrir ofan, snúðu tappanum varlega á meðan þú setur hann í, og með Loop Dream þarftu að halda honum inni í um fimm sekúndur meðan froðan þenst út.

Þetta vinnur saman frekar en hvort á móti öðru. Loop lækka hávaðann sem truflar; hvítur hávaði fyllir upp í þögnina svo einstök hljóð standi síður upp úr. Margir nota hvorttveggja: Loop Dream fyrir dempunina og lágan hvítan hávaða til að jafna út umhverfið.

Nei, en við seljum Loop Eclipse svefngrímu sérstaklega. Hún er úr mjúku foam-efni sem mótast að andlitinu, með stillanlegu bandi, og lokar á birtu. Það getur skipt máli á íslensku sumri þegar það er bjart langt fram á nótt.

Loop fyrir fókus, vinnu og nám

Quiet 2 dempar 24 dB og er beinlínis hugsað fyrir einbeitingu — það lækkar bakgrunnshljóð nógu mikið til að þú hættir að taka eftir þeim. Ef þú þarft að heyra í samstarfsfólki inn á milli hentar Engage 2 betur með 16 dB. Sjá nánar.

Engage 2 er algengasta valið í opnum rýmum. Hún dempar 16 dB, sem tekur brodda af samtölum, lyklaborðsglamri og símtölum í kring, en þú heyrir áfram þegar einhver ávarpar þig. Ef þú þarft dýpri vinnufrið í lengri lotum er Quiet 2 betri, eða Switch 2 ef þú vilt geta skipt.

Já, en veldu rétta gerð. Engage 2 er stillt á raddir og heldur þeim skýrum, svo hún hentar á fundum. Quiet 2 dempar meira og getur gert það erfiðara að fylgjast með. Athugaðu að þín eigin rödd hljómar hærra í höfðinu þegar eyrun eru þétt — flestir venjast því á nokkrum mínútum.

Já. Quiet 2 er algengasta valið fyrir lestur og próflestur því það dempar mest af gerðunum sem þægilegt er að nota klukkustundum saman. Loop koma ekki í stað þess að finna rólegan stað, en þau lækka bakgrunnshávaða á bókasafni, í lestarferð eða heima.

Nei, þú heyrir áfram. Loop loka ekki á hljóð heldur lækka það, svo nafnið þitt berst í gegn — oftast lægra og aðeins daufara. Engage 2 er næmust á raddir af þeim gerðum sem við seljum, svo hún hentar best þar sem þú þarft að vera viðbragðsfær.

Já. Loop eru ætluð til notkunar yfir langan tíma og sílikonið er mjúkt. Flestir taka þó pásu öðru hvoru, einfaldlega til að hvíla eyrun. Ef þú finnur fyrir þrýstingi eftir nokkra klukkutíma er tappinn líklega of stór; prófaðu næstu stærð fyrir neðan.

Við gerum engar fullyrðingar um það. Loop eru heyrnarhlífar sem lækka hljóðáreiti, ekki meðferð við neinu ástandi. Margir sem eru viðkvæmir fyrir áreiti nota þau og lýsa gagni af því, en ef þú ert að leita lausna vegna greiningar eða einkenna áttu samtalið við fagfólk, ekki við okkur.

Ekki í gegnum þau — Loop eru eyrnatappar, ekki heyrnartól, og það er ekkert hátalarakerfi í þeim. Sumir nota þau undir heyrnartólum sem liggja yfir eyrað til að dempa umhverfið enn frekar, en þá þarf að hækka í tónlistinni, og það vinnur gegn tilganginum.

Engage 2 er oft kölluð „foreldra-Loop" af ástæðu. Hún dempar 16 dB, sem tekur mesta broddinn af skræk og látum, en þú heyrir áfram hvað börnin segja og hvort eitthvað er að. Engage 2 Plus bætir við Loop Mute ef þú þarft meira næði í skamman tíma.

Loop fyrir tónleika og tónlist

Experience er hönnuð fyrir tónleika. Hún dempar 17 dB (SNR) og heldur hljómnum heilum í stað þess að deyfa bassann eða hátíðnina misjafnt, svo tónlistin hljómar eins — bara lægra. Experience 2 Plus bætir við Loop Mute ef þú þarft meira í hávaðasamari rýmum. Sjá nánar.

Froðutappar dempa hátíðni miklu meira en lágtíðni. Útkoman er að söngur og skýrleiki hverfa en bassinn dunar áfram, svo tónlistin hljómar dempuð og drullug. Experience er stillt þannig að dempunin dreifist jafnar yfir tíðnisviðið, og þess vegna heldur hljómurinn lögun sinni þótt styrkurinn lækki.

Hljóðstyrkur á tónleikum fer oft yfir 100 dB og getur legið þar klukkustundum saman. Því hærri sem styrkurinn er, því styttri tíma þolir heyrnin hann. Heyrnarskaði af hávaða er varanlegur og lagast ekki. Þess vegna skiptir máli að nota heyrnarvörn þótt þú finnir ekki fyrir óþægindum á staðnum.

Já, oft betur en án þeirra. Þegar heildarstyrkurinn lækkar þarftu ekki að öskra til að yfirgnæfa hljóðkerfið, og raddir skera sig betur úr. Experience heldur röddum skýrum, og margir lýsa því að samtöl við barinn verði auðveldari með töppunum í en án þeirra.

Margir tónlistarmenn nota Experience á æfingum og tónleikum því hljóðmyndin helst nokkuð heil. Hafðu í huga að þú heyrir sjálfan þig öðruvísi með þétt eyru, sérstaklega söngrödd, og það tekur smá tíma að venjast. Ef þú þarft sérsmíðaða tónlistartappa eftir máli er það annars konar vara en Loop.

Ef markmiðið er að heyra betur í fólki hentar Engage 2 best, því hún er stillt á raddir og dempar 16 dB. Ef þú ert á stað með háværa tónlist og vilt njóta hennar hentar Experience betur. Switch 2 leysir hvorttveggja ef kvöldið færist milli staða.

Já. Fyrir fullorðna duga Experience eða Quiet 2 vel. Fyrir börn mælum við frekar með eyrnahlífum en töppum: Loop Cocoon fyrir 1–4 ára og Loop fyrir börn frá sex ára aldri. Flugeldaskot eru stutt og mjög há, og þar skiptir heyrnarvörn mestu máli hjá þeim yngstu.

Fyrir flesta tónleika duga 17 dB vel. Ef þú stendur við hátalarana eða ert á rafmagnstónleikum í litlu rými gætir þú viljað meira — þá er Experience 2 Plus með Loop Mute góður kostur, eða Switch 2 sem nær 26 dB í Quiet-stillingu. Þú getur alltaf fært þig fjær hátölurunum líka.

Ekki ef stærðin er rétt. Tappinn á að sitja þétt og snúast varlega á sinn stað þegar þú setur hann í. Fyrir dans og hreyfingu mælum við með Loop Link hálsólinni, sem er með segli og heldur töppunum saman um hálsinn þegar þú tekur þá úr.

Loop á ferðalögum

Quiet 2 er algengasta valið því 24 dB dempun tekur vel á stöðugum vélarhávaða og hún er mjúk nóg til að nota alla flugferðina. Loop Dream hentar ef þú ætlar að sofa. Hafðu í huga að tapparnir jafna ekki þrýsting í eyrum við flugtak og lendingu — það gera eyrnatappar almennt ekki.

Já, mjög vel. Stöðugur ferðahávaði er einmitt það sem Loop lækka best. Quiet 2 hentar ef þú vilt ró, Engage 2 ef þú þarft að heyra tilkynningar eða ferðast með öðrum. Switch 2 gefur þér báða kosti í sama tappa.

Já, og það er algeng ástæða fyrir kaupunum. Loop Dream dempar mest, 27 dB, og hentar fyrir ókunnugt umhverfi með umferðarhávaða, lyftum og gangi. Taktu hulstrið með — tapparnir eru litlir og týnast auðveldlega á hótelherbergi.

Já. Loop eru lítil, úr sílikoni og plasti og engar takmarkanir gilda um þau í handfarangri. Hulstrið er á lyklakippu og fer auðveldlega í vasa, veski eða tösku. Við mælum með að geyma þau alltaf í hulstrinu á ferðalagi, bæði svo þau týnist ekki og svo þau haldist hrein.

Já. Quiet 2 og Loop Dream dempa nógu mikið til að gagnast á tjaldsvæði þar sem nágrannarnir eru nálægt. Dream hentar betur ef þú sefur á hliðinni í svefnpoka. Mundu að þú heyrir áfram ef eitthvað gerist — Loop loka ekki á umhverfið.

Loop í daglegu lífi

Engage 2 er hönnuð fyrir það. Hún dempar 16 dB, sem tekur broddinn af umferð, verslunum, fjölmenni og hávaða heima, en heldur röddum skýrum svo þú ert áfram með í því sem er að gerast. Þetta er algengasta gerðin fyrir fólk sem vill lækka í deginum án þess að loka sig af.

Já, ef stærðin er rétt sitja þau kyrr við hreyfingu. Margir nota Engage 2 til að dempa tónlistina í salnum án þess að missa af umhverfinu. Ef þú hleypur úti skaltu hafa í huga að þú heyrir umferð lægra — veldu minna dempandi gerð og notaðu sjónina.

Loop eru vottuð heyrnarvörn, en vinnustaðir með háværum vélum geta haft kröfur um tiltekna dempun. Athugaðu hvaða SNR-gildi er krafist á þínum vinnustað og berðu saman við gerðirnar: Quiet 2 er 24 dB og Switch 2 nær 26 dB í Quiet-stillingu. Ef vafi leikur á skaltu spyrja öryggisfulltrúa.

Fyrir ryksugu, þvottavél og almennan skarkala duga Engage 2 eða Quiet 2 vel. Fyrir borvél, slípirokk og önnur verkfæri þarftu meiri dempun en þessar gerðir gefa — þá eru eyrnaskjól betri kostur. Loop eru hugsuð fyrir hversdagshávaða frekar en verkstæðishávaða.

Já. Experience hentar þar sem þú vilt njóta hljóðsins á lægri styrk, til dæmis í bíó þar sem hljóðið er oft stillt hátt. Engage 2 hentar betur ef talað orð skiptir mestu. Hvorug lokar á hljóðið, svo þú missir ekki af neinu.

Loop eru venjuleg heyrnarvörn og engin sérstök takmörk gilda á meðgöngu. Þau eru hins vegar ekki hönnuð til að nota með heyrnartækjum — tappinn þarf að þétta eyrnagöngin og heyrnartæki eru þegar þar. Ef þú notar heyrnartæki skaltu ræða heyrnarvörn við heyrnarfræðinginn þinn.

Börn, stærðir, notkun og umhirða

Loop fyrir börn og unglinga

Við seljum tvær gerðir. Loop fyrir börn (Engage Kids) eru eyrnatappar fyrir börn frá sex ára aldri og dempa allt að 16 dB. Loop Cocoon eru eyrnahlífar fyrir 1–4 ára með allt að 25 dB dempun. Sjá nánar um Loop fyrir börn.

Loop fyrir börn eru ætluð frá sex ára aldri og henta upp að um tólf ára. Fyrir yngri börn mælum við með eyrnahlífum í staðinn — Loop Cocoon eru fyrir 1–4 ára. Eyrnatappar í eyrum mjög ungra barna eru bæði erfiðari í mátun og áhætta ef þeir losna.

Loop fyrir börn dempa allt að 16 dB. Það er sama stig og Engage 2 fyrir fullorðna og er viljandi valið: barnið heyrir áfram í kennara, foreldrum og félögum, en mesti broddurinn fer af. Þetta er heyrnarvörn fyrir daglegt áreiti frekar en fyrir mjög háværar aðstæður.

Loop Cocoon eru vottaðar eyrnahlífar sem dempa allt að 25 dB (SNR). Þær eru með mjúkum örtrefjapúðum og stillanlegri ól sem passar höfuðummál frá 40 upp í 56 cm. Þær eru hugsaðar fyrir flugelda, flug, veislur, brúðkaup og aðrar aðstæður þar sem lítil eyru verða fyrir miklum hávaða.

Með Loop fyrir börn fylgja tappar í stærðum XS, S og M. Byrjaðu á minnstu stærðinni og farðu upp þangað til tappinn situr þétt án þess að þrýsta. Rétt stærð finnst á því að hljóðið lækkar greinilega þegar tappinn fer inn, og að hann helst á sínum stað þegar barnið hreyfir sig.

Togaðu varlega aftur og upp í efri hluta eyrans svo eyrnagöngin réttist, snúðu tappanum rólega inn þangað til hann situr þétt og slepptu svo eyranu. Barnið á að finna greinilegan mun á hljóði. Æfðu þetta heima í rólegheitum áður en þið farið á viðburð.

Mörg börn nota þau í kennslustofu, í matsal og í frímínútum til að lækka áreiti. Þau dempa 16 dB og barnið heyrir áfram í kennaranum. Við mælum með að ræða það við kennarann fyrst svo allir viti af þeim, og að nota hálsól svo þeir týnist ekki.

Fyrir börn frá sex ára aldri duga Loop fyrir börn í flestum tilvikum. Fyrir mjög háværar aðstæður eins og flugelda og þrettándann, og fyrir börn yngri en sex ára, mælum við frekar með Loop Cocoon eyrnahlífum sem dempa allt að 25 dB og sitja tryggilega á höfðinu.

Þau eru vottuð heyrnarvörn framleidd fyrir börn og koma í stærðum sem passa minni eyru. Eins og með alla litla hluti á fullorðinn að hafa umsjón með notkuninni, sérstaklega hjá yngri börnum, og geyma þau í hulstrinu þegar þau eru ekki í notkun.

Við gerum engar fullyrðingar um það og seljum þau ekki sem meðferð. Loop eru heyrnarhlífar sem lækka hljóðáreiti. Sumir foreldrar barna sem eru viðkvæm fyrir áreiti lýsa gagni af þeim, en ákvörðun um stuðning við barn með greiningu á heima hjá fagfólki sem þekkir barnið.

Já, ef eyrun eru orðin nógu stór fyrir töppana. Loop fyrir börn eru hugsuð upp að um tólf ára, og eftir það passa fullorðinsgerðirnar flestum. Engage 2 er algengasta valið fyrir unglinga í skóla og fjölmenni, og Experience fyrir tónleika.

Stærðir og passform

Byrjaðu á M, sem er stærðin sem flestum passar, og farðu upp eða niður eftir því hvernig hún situr. Með flestum gerðum fylgja fjórar stærðir: XS, S, M og L. Rétt stærð þéttir eyrað án þess að þrýsta, og þú finnur greinilegan mun á hljóði um leið og tappinn fer inn.

Þrennt þarf að stemma. Hljóðið lækkar greinilega þegar tappinn fer inn. Hann situr kyrr þegar þú hreyfir hausinn eða tyggur. Og þú finnur ekki fyrir þrýstingi eftir smá stund. Ef hljóðið lækkar lítið er tappinn of lítill; ef hann þrýstir eða verður óþægilegur er hann of stór.

Já, og það er algengara en fólk heldur. Eyru eru ekki alltaf eins stór og Loop fylgja nógu margar stærðir til að þú getir blandað. Það er betra að nota rétta stærð í hvoru eyra en að þvinga sömu stærð í bæði.

Togaðu varlega aftur og upp í efri hluta eyrans með hinni hendinni svo eyrnagöngin réttist. Snúðu tappanum rólega inn þangað til hann situr þétt, og slepptu svo eyranu. Með Loop Dream þarftu að halda tappanum inni í um fimm sekúndur meðan froðan þenst út og fyllir upp í.

Nánast alltaf er það passformið. SNR-talan miðast við að tappinn þétti alveg; ef hann gerir það ekki sleppur hljóð fram hjá og dempunin hrynur. Prófaðu næstu stærð fyrir ofan, settu tappann í með snúningi og athugaðu hvort hljóðið lækki greinilega þegar hann fer á sinn stað.

Já. Við seljum auka tappa fyrir Engage og Experience í stærðum XS til L og auka tappa fyrir Loop Dream. Það borgar sig líka að eiga varatappa því þeir eru það sem slitnar fyrst og týnist auðveldast.

XS er minnsta stærðin og dugar flestum sem eru með lítil eyrnagöng. Quiet 2 er mýkst í gegn og aðlagast best, og Loop Dream mótast að eyranu því tapparnir eru úr memory foam. Ef XS er enn of stór duga Loop eyrnatappar því miður ekki — þá henta eyrnaskjól betur.

Ekki ef stærðin er rétt og tappinn er settur inn með snúningi. Ef þeir losna við hreyfingu er stærðin líklega of lítil. Fyrir hreyfingu, dans og ferðalög mælum við með Loop Link hálsólinni, sem er með segli og heldur töppunum saman um hálsinn þegar þú tekur þá úr.

Þrif, viðhald og ending

Taktu sílikontappana af og hreinsaðu þá sér í volgu vatni með mildri sápu. Þurrkaðu sjálfan tappann — hringinn með síunni — með rökum klút. Ekki leggja hringinn í bleyti og ekki nota spritt eða sterk hreinsiefni. Láttu allt þorna alveg áður en þú setur saman aftur.

Loop mælir með að þrífa þá á eins til tveggja daga fresti ef þú notar þá daglega, og eftir hverja notkun ef þú notar þá sjaldnar. Eyrnamergur og raki safnast fyrir í síunni og það dregur úr dempun ef ekkert er að gert. Geymdu þá alltaf í hulstrinu.

Loop Dream er með memory foam töppum og þolir ekki sömu meðferð og sílikon. Taktu tappana af og þurrkaðu þá varlega með rökum klút — ekki leggja þá í bleyti og ekki nota þvottaefni, það skemmir efnið. Þurrkaðu hringinn með rökum klút og láttu allt þorna alveg.

Sjálfir tapparnir, hringurinn með síunni, endast árum saman ef þú ferð vel með þá. Það sem slitnar eru sílikontapparnir fremst, og Loop mælir með að skipta um þá á þriggja til sex mánaða fresti, eða fyrr ef þeir eru farnir að upplitast, harðna eða missa mýkt.

Þegar þeir missa mýktina, upplitast, rifna eða hætta að þétta jafn vel og áður. Þumalputtareglan frá Loop er þrír til sex mánuðir við reglulega notkun. Lakari dempun en áður er líka merki — ef hljóðið lækkar minna en það gerði eru tapparnir oftast orðnir þreyttir.

Nei. Hvorki suða né uppþvottavél hentar — hitinn aflagar sílikonið og skemmir síuna í hringnum. Volgt vatn og mild sápa fyrir sílikontappana, rakur klútur fyrir hringinn, og þurrkun við stofuhita er það sem Loop mælir með.

Alltaf í hulstrinu sem fylgir. Það heldur þeim hreinum, kemur í veg fyrir að þeir týnist og ver þá fyrir þrýstingi í vasa eða tösku. Geymdu þá þurra — settu þá ekki í hulstrið strax eftir þrif meðan þeir eru enn rakir.

Við seljum auka tappa sér, bæði fyrir Engage og Experience og fyrir Loop Dream. Ef þú týnir sjálfum eyrnatappanum með hringnum þarftu nýtt par. Loop Link hálsólin er besta vörnin gegn því að týna þeim.

Fylgihlutir

Við seljum Loop Link hálsól með segli sem heldur töppunum saman um hálsinn, auka sílikontappa fyrir Engage og Experience, auka tappa fyrir Loop Dream og Loop Eclipse svefngrímu. Sjá allt úrvalið. Auka tappar eru það sem flestir kaupa aftur, enda eina hlutinn sem slitnar við venjulega notkun.

Loop Link er ól sem þú hefur um hálsinn og festir eyrnatappana við. Í henni er segull sem heldur töppunum saman þegar þú tekur þá úr, svo þeir hanga á þér í stað þess að fara í vasa eða týnast. Hún hentar sérstaklega vel við hreyfingu, dans og í vinnu þar sem þú tekur þá oft úr.

Loop Mute er lítill aukahlutur sem smellur framan á eyrnatappann og eykur dempunina. Hann fylgir með Plus-útgáfunum: Engage 2 Plus fer úr 16 dB í 25 dB með Mute, og Experience 2 Plus bætir við 3 dB. Þú tekur hann af þegar þú vilt heyra betur í umhverfinu.

Nei, svefngríman er seld sér. Hún er úr mjúku foam-efni sem mótast að andlitinu, með stillanlegu frönskurennilásbandi, og lokar á birtu. Margir nota hana með Loop Dream — grímuna fyrir birtuna og tappana fyrir hljóðið, sem er gagnlegt samsett á íslensku sumri.

Hulstur fylgir með öllum Loop eyrnatöppum sem við seljum. Auka hulstur eru ekki alltaf til á lager hjá okkur — hringdu í 518 6000 eða sendu póst á info@htl.is og við athugum hvað er til hverju sinni.

Sílikontapparnir fyrir Engage, Experience, Quiet og Switch eru af sömu gerð og ganga á milli. Loop Dream notar aðra tappa, memory foam, og þeir eru ekki þeir sömu. Veldu því rétta vöru: tappar fyrir Engage og Experience eða tappar fyrir Dream.

Vöruúrval, pantanir og skil

Annað vöruúrval HTL

Við seljum sundvörur fyrir börn og fullorðna, gripsokka, bæjarveggmyndir og gjafavörur, auk þess sem við leigjum út og seljum hjálpartæki. Verslunin er í Hátúni 12 og þar er hægt að skoða allt úrvalið og fá ráðgjöf.

Við eigum sundföt, sundgleraugu, sundhúfur, kúta og sundvesti, margnota sundbleyjur, sundleikföng, eyrnabönd, köfunarbúnað, sundsokka og handklæði. Úrvalið nær frá fyrstu sundferð ungbarns upp í æfingabúnað fyrir fullorðna. Sjá allar sundvörur. Við veljum vörur sem við þekkjum sjálf og getum ráðlagt um, og þú getur alltaf hringt í 518 6000 ef þú ert í vafa um stærð eða gerð.

Já, við eigum margnota sundbleyjur í mörgum stærðum, meðal annars Happy Nappy frá Splash About. Þær eru til frá minnstu stærðum fyrir ungbörn og upp úr og fást í ýmsum munstrum. Margnota sundbleyja kemur í stað einnota og er það sem flestar sundlaugar gera kröfu um.

Við eigum kúta og sundvesti, meðal annars KraulQuappen armkúta sem fást eftir aldri og þyngd, auk sundvesta í mörgum litum. Einnig eru til sundeyrnabönd fyrir börn sem þurfa að verja eyrun í vatni. Veldu alltaf eftir aldri og þyngd barnsins, og mundu að flotbúnaður kemur aldrei í stað eftirlits fullorðinna.

Gripsokkar eru sokkar með gripi undir ilinni sem minnka hættu á að renna á hörðu gólfi. Þeir eru mikið notaðir á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum og heima hjá fólki sem er valt á fótum, og einnig í jóga og á leikskólum. Sjá úrvalið.

Stærsta vörumerkið okkar er Loop earplugs. Í sundvörunum erum við meðal annars með Splash About og Cherek’s KraulQuappen. Við veljum vörumerki sem við þekkjum sjálf og getum svarað fyrir, frekar en að taka inn sem mest úrval.

Já. Hringdu í 518 6000 eða sendu póst á info@htl.is og við hjálpum þér að velja. Það á sérstaklega við um Loop, þar sem valið ræðst af því hvað þú vilt dempa, og um hjálpartæki, þar sem þarfirnar eru ólíkar frá einum til annars.

Pantanir og greiðslur

Veldu vöruna, settu hana í körfuna og farðu í greiðsluferlið. Þar velur þú hvort þú vilt fá sendingu eða sækja í verslunina í Hátúni 12, slærð inn upplýsingar og greiðir. Þú færð staðfestingarpóst um leið og pöntunin fer í gegn.

Greitt er með greiðslukorti í öruggri greiðslugátt Shopify. Kortaupplýsingar fara aldrei í gegnum okkur. Ef þú vilt greiða með öðrum hætti, til dæmis vegna leigu á hjálpartæki eða reiknings fyrir stofnun, hafðu þá samband í síma 518 6000 eða á info@htl.is.

Já. Greiðsluferlið keyrir á greiðslugátt Shopify, sem er dulkóðuð, og við geymum engar kortaupplýsingar. htl.is er rekið af HTL ehf, kt. 540923-0190, Hátúni 12, 105 Reykjavík. Þú getur alltaf hringt í 518 6000 ef þú vilt staðfesta pöntun símleiðis.

Hafðu samband eins fljótt og þú getur í síma 518 6000 eða á info@htl.is. Ef pöntunin er ekki farin af stað getum við oftast breytt henni eða bætt við. Eftir að hún er komin í sendingu þarf að fara í gegnum venjulegt skilaferli.

Nei. Samkvæmt skilmálum okkar gilda afsláttarkóðar ekki með öðrum afsláttum eða tilboðum. Þú notar einn afslátt í einu og setur kóðann inn í greiðsluferlinu. Ef kóðinn virkar ekki er það oftast vegna þess að varan er þegar á tilboði eða kóðinn er útrunninn.

Þú færð staðfestingarpóst með yfirliti yfir pöntunina um leið og hún fer í gegn. Ef þú þarft reikning á kennitölu fyrirtækis eða stofnunar, hafðu samband á info@htl.is og við sendum hann. Finnir þú ekki staðfestingarpóstinn skaltu athuga ruslpóstinn, og hafa annars samband í síma 518 6000 svo við getum sent hann aftur.

Já. Við afgreiðum pantanir fyrir skóla, leikskóla, hjúkrunarheimili, fyrirtæki og stofnanir. Hafðu samband í síma 518 6000 eða á info@htl.is, sérstaklega ef um er að ræða magn, reikning eða sérstakt greiðslufyrirkomulag. Við höfum lengi afgreitt opinberar stofnanir og þekkjum ferlið, svo það er yfirleitt fljótlegt að koma því í gang.

Sendingar og afhending

Við sendum vörur um allt land með Dropp. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferlinu eftir staðsetningu og stærð pöntunar, og þú sérð hann áður en þú greiðir. Þú getur líka valið að sækja pöntunina í versluninni í Hátúni 12 og sleppa sendingarkostnaði.

Afgreiðslutími ræðst af því hvenær pöntunin berst og hvaða sendingarleið þú velur. Dropp afhendir á höfuðborgarsvæðinu og út á land, og afhendingartíminn kemur fram þegar þú velur sendingarmáta í greiðsluferlinu. Ef þú ert að flýta þér skaltu hringja í 518 6000 og við athugum hvað er hægt.

Já. Veldu afhendingu í verslun í greiðsluferlinu og sæktu pöntunina í Hátún 12, 105 Reykjavík. Pantanir eru yfirleitt tilbúnar innan sólarhrings og við látum þig vita þegar hún er klár. Þá sparar þú sendingarkostnaðinn og getur fengið ráðgjöf á staðnum í leiðinni.

Já, við sendum um allt land með Dropp. Kostnaðurinn reiknast í greiðsluferlinu eftir staðsetningu. Fyrir hjálpartækjaleigu gilda önnur kjör og þá greiðir leigutaki flutningskostnaðinn út á land — hringdu í 518 6000 og við förum yfir það með þér.

Vefverslunin okkar er fyrst og fremst fyrir íslenska viðskiptavini. Ef þú vilt fá sendingu til útlanda skaltu hafa samband á info@htl.is áður en þú pantar, svo við getum staðfest hvort við komum því við og hvað það kostar.

Hafðu samband við okkur á info@htl.is eða í síma 518 6000 með pöntunarnúmerinu. Við rekjum sendinguna hjá Dropp og finnum út hvar hún er. Flestar sendingar sem virðast týndar skila sér, en ef pakki tapast sjáum við um að leysa málið.

Hafðu samband sem fyrst á info@htl.is eða í síma 518 6000, helst með mynd af skemmdinni og umbúðunum. Við útvegum nýja vöru eins fljótt og hægt er og sendingarkostnaður vegna gallaðrar eða skemmdrar vöru er á okkar kostnað.

Skil, skipti og ábyrgð

Hjá HTL er alltaf 14 daga skilafrestur og þá er líka hægt að fá endurgreitt. Vöru þarf að skila í upprunalegu ástandi, ónotaðri og í upprunalegum pakkningum. Hafðu samband við okkur fyrst og við sendum þér leiðbeiningar. Sjá skilareglur.

Hafðu samband sem fyrst á info@htl.is eða í gegnum Facebook og við sendum þér allar upplýsingar. Ef þú býrð úti á landi sendir þú vöruna til okkar á eigin kostnað og við sendum nýja vöru á okkar kostnað.

Endurgreiðsla fer fram þegar skilavaran hefur borist okkur og er greidd með sama hætti og upphaflega var greitt. Endurgreiðslur á greiðslukort eru framkvæmdar næsta virka dag. Athugaðu að sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur. Ef þú greiddir með millifærslu er endurgreitt inn á sama reikning, einnig næsta virka dag eftir að varan berst okkur.

Af hreinlætisástæðum getum við ekki tekið við eyrnatöppum sem hafa verið settir í eyru. Þetta er sama regla og gildir almennt um vörur sem fara í eyru, munn eða nef. Ef varan er gölluð gildir það ekki — þá leysum við málið hvort sem hún hefur verið notuð eða ekki.

Hafðu samband sem fyrst á info@htl.is eða í síma 518 6000 og lýstu gallanum. Við útvegum nýja vöru eins fljótt og mögulegt er og sendingarkostnaður vegna gallaðrar vöru er á okkar kostnað. Það skiptir ekki máli hvort varan hefur verið notuð.

Já, innan 14 daga skilafrests og ef varan er ónotuð og í upprunalegum umbúðum. Hafðu samband á info@htl.is og við förum yfir hvað er til. Ef þú þarft aðra stærð af Loop töppum er oft einfaldara og ódýrara að kaupa auka tappa en að skipta um vöru.

Loop eru framleiðsluvara með venjulegri ábyrgð gegn framleiðslugöllum. Slit á sílikontöppum telst ekki galli — þeir eru rekstrarvara sem skipta á út á þriggja til sex mánaða fresti. Ef hringurinn eða sían bilar án þess að varan hafi orðið fyrir hnjaski skaltu hafa samband við okkur.

Hafðu samband á info@htl.is eða í síma 518 6000 með pöntunarnúmeri. Við sendum rétta vöru og sjáum um kostnaðinn við að koma rangri vöru til baka. Þetta er okkar mistök og á ekki að kosta þig neitt.

Hjálpartæki, leiga og HTL

Hjálpartæki og leiga

Þú velur tækið á htl.is, hringir í 518 6000 eða sendir póst á info@htl.is. Tækið er sótt í Hátún 12, 105 Reykjavík, eða sent heim til þín. Leigutími miðast við dag, viku eða mánuð. Sjá hjálpartæki og leigu.

Við leigjum meðal annars út hjólastóla, sjúkrarúm, rafskutlur og önnur tæki til daglegs lífs. Úrvalið breytist eftir því hvað er laust hverju sinni, svo hringdu í 518 6000 ef þú ert að leita að einhverju tilteknu og við athugum stöðuna fyrir þig.

Sending á höfuðborgarsvæðinu kostar 6.000 kr á virkum dögum og sama gjald þegar tækið er sótt aftur. Um helgar og frídaga er gjaldið 8.500 kr. Við sendum einnig út á land og þá greiðir leigutaki flutningskostnaðinn.

Já. Öll tæki eru vandlega þrifin og sótthreinsuð á milli viðskiptavina áður en þau fara í næstu leigu. Við skoðum líka ástand og virkni búnaðarins um leið. Ef eitthvað er athugavert við tækið sem þú fékkst skaltu hringja strax í 518 6000.

Já. Hringdu í 518 6000 eða sendu póst á info@htl.is áður en leigutímanum lýkur og við framlengjum. Umframdagar eru gjaldfærðir samkvæmt verðskrá hvers tækis. Það er betra að hafa samband tímanlega því tækið gæti verið bókað hjá öðrum, og þá finnum við aðra lausn.

Hafðu samband við okkur sem fyrst. Við erum sveigjanleg og finnum lausn með þér. Samkvæmt leiguskilmálum ber leigutaki ábyrgð á að skila búnaðinum á réttum tíma eða semja um framlengingu áður en leigutímanum lýkur.

Já. Láttu flugfélagið vita af stærð stólsins. Samanbrotinn er hann 93 × 26 × 103 cm og 17 kg. Athugaðu að rafskutlur má ekki flytja með flugi þar sem flugfélög leyfa ekki flutning rafhlaðanna.

Það fer eftir aðstæðum. Sjúkratryggingar Íslands niðurgreiða hjálpartæki í vissum tilvikum þegar þörfin er langvarandi. Við bendum á sjukra.is fyrir gildandi reglur og aðstoðum þig við að meta hvað hentar í þínu tilviki.

Já. Við seljum einnig hjálpartæki, til dæmis sjúkrarúm og rafskutlur, auk gripsokka og fleiri vara til daglegs lífs. Ef þörfin er langvarandi borgar sig oft að kaupa frekar en að leigja, og við ráðleggjum þér við valið.

Já. Samkvæmt leiguskilmálum ber leigutaki fulla ábyrgð á skemmdum á búnaðinum, skal tilkynna galla strax, nota búnaðinn rétt og skila honum hreinum í sama ástandi. Ekki má lána eða leigja búnaðinn áfram til þriðja aðila.

Um HTL

htl.is er rekið af HTL ehf, kt. 540923-0190, VSK-númer 150083, Hátúni 12, 105 Reykjavík. Fyrirtækið var stofnað haustið 2023 af Davíð Þ. Olgeirssyni og Rut Jóhannsdóttur. Lesa meira um HTL.

Verslunin er í Hátúni 12, 105 Reykjavík, í Sjálfsbjargarhúsinu. Þar getur þú skoðað vörurnar, mátað Loop eyrnatappa, sótt pantanir og fengið ráðgjöf um sundvörur og hjálpartæki. Síminn er 518 6000 og netfangið info@htl.is.

Verslunin er opin á virkum dögum. Opnunartími getur breyst eftir árstíðum, til dæmis yfir sumarið og í kringum hátíðir, svo við höldum honum uppfærðum á opnunartímasíðunni. Þar sérð þú alltaf núgildandi tíma. Þú getur líka hringt í 518 6000 á opnunartíma.

Já, neyðarþjónusta er í síma 664 2240 utan opnunartíma. Hún er fyrir þá sem eru með leigð hjálpartæki og þurfa aðstoð þegar verslunin er lokuð. Gjald fyrir útkall utan opnunartíma er samkvæmt gildandi verðskrá, sjá opnunartímasíðuna.

Hringdu í 518 6000, sendu póst á info@htl.is eða komdu við í Hátúni 12, 105 Reykjavík. Þú getur líka sent okkur skilaboð á Facebook. Við svörum eins fljótt og við getum á virkum dögum. Samskiptasíðan.

Davíð, annar stofnenda HTL, starfaði hjá Hjálpartækjaleigu Sjálfsbjargar í átta ár áður en HTL var stofnað árið 2023. Hjálpartækjaleigan er áfram á sama stað, í Hátúni 12, svo þeir sem hafa sótt hjálpartæki þangað árum saman þurfa ekki að leita að nýjum stað.

Fannstu ekki svarið?

Hringdu í 518 6000, sendu póst á info@htl.is eða komdu við í Hátúni 12, 105 Reykjavík. Við svörum á virkum dögum.