Skilmálar

Þessi vefsíða er í eigu og rekin af htl ehf, kt. 540923-0190. Hátún 12, 105 Reykjavík. VSK númer: 150083.

Vinsamlegast lesið yfir skilmálana, ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband við okkur á info@htl.is


Aðgangur og notkun vefsíðunnar www.htl.is er háð eftirfarandi skilmálum. Þegar farið er inn á vefsíðuna, skoðað eða lagt fram pöntun eru eftirfarandi skilmálar samþykktir.
Htl ehf áskilur sér rétt til að breyta, fjarlægja eða bæta við vefsíðuna og skilmála hennar án sérstakra tilkynninga. Skilmálar sem eru í gildi þegar pöntun er gerð, gilda um viðkomandi pöntun. Skilmálarnir skulu vera í samræmi við landslög Íslands, tilskipanir og reglur Evrópska Efnahagssvæðisins eftir því sem við á.
Htl ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og að breyta verðum án fyrirvara eða hætta að bjóða upp á vörur fyrirvaralaust í sölu.


Kaupskilmálar
Best er að ganga frá pöntun á vefsíðunni okkar, þar eru bókanir gerðar á leigum skv. dagatali og vörukaup fara þar í gegn.
Vörur í innkaupakörfu eru ekki fráteknar fyrr en pöntun hefur verið staðfest af htl ehf, staðfesting sendist á netfang sem gefið er upp í greiðsluferlinu. Þegar pöntun er afgreidd á vefsíðunni er kominn á bindandi samningur um kaup eftir að pöntun hefur verið staðfest og send á netfangið sem gefið var upp. 

Leiguskilmálar

Leigutaki samþykkir: 

  •   Að tilkynna strax til leigusala ef galli kemur fram í búnaðinum.
  •   Að búnaðurinn sé notaður á réttan hátt, t.d. ekki noti hann þyngri aðilar en hann er gefinn upp fyrir.
  •   Að skila búnaðinum á réttum tíma eða hafa samband og athuga hvort hægt sé að framlengja. 
  •   Að leigutaki ber alla og fulla ábyrgð á skemmdum á búnaði.
  •   Að leigutaka er ekki heimilt að leigja eða lána búnaðinn til þriðja aðila.
  •   Að skila búnaðinum hreinum og í sama ástandi og tekið var við honum.
  •       Leigutaki skal tryggja, svo sem honum er framast unnt, að búnaður sem hann hefur á leigu hjá leigusala sé ekki útsettur fyrir þjófnaði
  •       Leigutaki skal bera allan kostnað sem kann að falla til vegna flutninga á búnaði.
  •       Leigugjald er rukkað við upphaf leigu. Sé leigu framlengt yfir mánaðarmót áskilur leigusali sér rétt að senda út reikning við hver mánaðarmót þar til búnaði sé skilað.
  •       Standi leigutaki ekki skil á greiðslum leigugjalds eða annarra tilfallandi gjalda sem getið er um í skilmálum þessum eða gjaldskrá leigusala, áskilur leigusali sér rétt til að endurheimta þann búnað sem leigutaki hefur í vörslum sínum. Að beiðni leigusala skal leigutaki afhenda leigusala búnað án tafar. 

Greiðslur
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi í gegnum greiðslusíðu Verifone, Aur eða Netgíró.
Debet- eða kreditkorta greiðslur: Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og þegar pöntun verður send af stað.
Allir kredit- og debetkortakorthafar gangast undir skilmála kortaútgefanda. Ef útgefandi tiltekins kredit- eða debetkorts neitar að heimila greiðslu til htl ehf, berast þér skilaboð þar sem fram kemur að greiðsluna sé ekki hægt að framkvæma. htl ehf ber ekki ábyrgð á töfum eða synjun á því að vara sé afhent sé það rakið til synjunar á korti eða heimildar.
Ef þú nýtir þér greiðslu í gegnum Netgíró verður reikningur sendur í netbanka með 14 daga greiðslufresti eða næstu mánaðarmót. Hægt er að dreifa greiðslum.


Afhendingar
Htl ehf afgreiðir pantanir eins fljótt og auðið er.
Allar pantanir sem berast og eru greiddar eru afhentar eftir þeim sendingarmáta sem er valinn af viðskiptavin. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Sendingarkostnaður bætist við verð vöru í lok kaupferils og áður en greiðsla fer fram. Ef verslað er fyrir 15.000 kr eða meira fellur sendingarkostnaður niður og htl ehf greiðir fyrir hann.
Afhendingartími er 1-3 virkir dagar, eftir hvaða sendingarmáti er valinn.
Ef afhendingu seinkar verulega eða í meira en 20 daga hefur þú heimild til að hætta við kaupin. Í slíku tilviki biðjum við þig að hafa samband við okkur á info@htl.is
www.htl.is ber enga ábyrgð á neinum töfum sem verða á afhendingu pantana vegna utanaðkomandi atburða, eins og flóð, eldsvoða, vinnudeilur, verkföll, uppþot, óeirðir, opinberar aðgerðir eða aðra svipaða atburði.


Vöruverð og upplýsingar
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur htl ehf. sér þann rétt til að hætta við viðskipti ef rangt verð er gefið upp, eins eru allar upplýsingar og myndir af vörum birtar með fyrirvara.
Verð eru gefin upp í íslenskum krónum (ISK) á vefsíðunni og er vsk innifalinn. Verð geta breyst og tilboð má afturkalla hvenær sem er.
Htl ehf getur tímabundið boðið uppá tilboðsverð eða afslætti, með eða án sérstakra kóða. Htl ehf áskilur sér rétt til þess að afturkalla afslátt, tilboðsverð og kóða hvenær sem er.


Skilafrestur, endurgreiðsluréttur & ábyrgð

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Fresturinn tekur gildi þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd á kreditkort. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Samkvæmt lögum ber þér að gæta þess að varan sé í lagi á meðan hún er í þinni vörslu og berð ábyrgð á skemmdum meðan á flutningi stendur. Þegar varan er móttekin er gengið frá endurgreiðslu. Vara sem reynist gölluð er vörunni skipt út fyrir sömu vöru.
Útsöluvörum fæst hvorki skipt né skilað.


Trúnaður & öryggi
htl ehf. heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem viðskiptavinur gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Allar greiðslur í vefverslun www.htl.is eru öruggar og fara í gegnum örugga greiðslusíðu Verifone eða Netgíró, öll gögn og upplýsingar eru trúnaðarmál.


Meðferð persónuupplýsinga
Viðskiptavinir vefsíðu htl ehf þurfa að gefa upp persónuupplýsingar, nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang þegar keyptar eru vörur á vefversluninni. Ef viðskiptavinur vill síðar að þessum upplýsingum sé eytt, munum við verða við þeirri ósk nema að það sé ekki hægt af bókhaldslegum eða lagalegum ástæðum. Þessar upplýsingar eru eingöngu aðgengilegar starfsmönnum htl ehf og upplýsingarnar eru einungis notaðar til að afgreiða pantanir sem hafa verið gerðar og sinna málum er koma upp í tengslum við þær. Htl ehf. leggur áherslu á að öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina sinna sé gætt.

Meðferð og úrvinnsla allra persónuupplýsingar eru í samræmi við lög og reglur (persónuverndarlög). Áhersla er lögð á að vinnsla á persónugreinanlegum upplýsingum sé takmörkuð, að því marki að hægt sé að veita þá þjónustu sem óskað er eftir. Upplýsingar sem viðskiptavinur samþykkir að sóttar séu af þriðja aðila eru einungis afhentar í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum þá þjónustu sem óskað er eftir.
IP tala þín er skráð við greiðslu pöntunar. Þær upplýsingar ásamt persónuupplýsingum og upplýsingum um vörukaup gætu verið notaðar í tengslum við lögreglurannsókn vakni grunur um sviksemi eða misnotkun greiðslukorta.


Vefkökur
Vefkökur (cookies) frá fyrsta aðila eru notaðar á ýmsum hlutum vefsins og í ýmsum tilgangi. Þær geta t.d. verið notaðar til að fylgja slóð tiltekins notenda gegnum vefinn, vista stillingar sem hann hefur valið eða halda utan um hvaða vörur hann hefur séð. Hjálpartækjaleigan notar vefkökur til að greina umferð um vefsvæðið til að bæta upplifun notenda.
Vefkökur eru ekki tengdar við persónuupplýsingar, nema í þeim tilvikum sem nefnd eru hér að ofan. Persónuupplýsingar eru aldrei vistaðar í vefkökunum sjálfum. Persónuupplýsingar notenda eru aldrei afhentar þriðja aðila án samþykkis viðkomandi nema að undangengnum dómsúrskurði.
Vefkökur sem tilheyra þriðja aðila (Google og Facebook) eru notaðar á vefsíðu htl ehf m.a. til þess greina notkun vefsvæðisins hvað varðar fjölda notenda og hegðun þeirra þar. Hægt er að nálgast upplýsingar um hvernig þessir aðilar nota vefkökur á vefsíðum þeirra.

Lög og varnarþing
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun Hjálpartækjaleigunnar á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Aðrar upplýsingar
Netfang: info@htl.is
Heimilisfang: Hátún 12, 105 Reykjavík
Kt: 540923-0190
Sími: 518 6000
Htl ehf áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessa skilmála. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu htl.is telst nægileg tilkynning.

Skilmálar voru síðast uppfærðir 7.4.2024