Faðir heldur á ungu barni og notar Loop Engage 2 eyrnatappa
Faðir heldur á ungu barni og notar Loop Engage 2 eyrnatappa

Notkun

Loop fyrir fókus og einbeitingu

Vinna, nám og opin vinnurými — hvenær Quiet og hvenær Engage.

Stysta svarið: Loop Quiet 2 hentar best fyrir einbeitingu. Hún dempar 24 dB (SNR), sem lækkar bakgrunnshljóð nógu mikið til að þú hættir að taka eftir þeim. Þarftu að heyra í samstarfsfólki inn á milli hentar Engage 2 betur með 16 dB.

Hvað truflar þig — hávaði eða mannamál?

Þetta ræður valinu. Stöðugur hávaði — loftræsting, umferð, vélar, kaffihúsaniður — hverfur vel við 24 dB og þá er Quiet 2 rétta gerðin. Mannamál er annað mál: það er einmitt það sem heilinn grípur í. Quiet 2 lækkar orðaskil nógu mikið til að þau hætti að trufla, en þá heyrirðu heldur ekki þegar einhver ávarpar þig.

Í opnu vinnurými

Engage 2 er algengasta valið. Hún tekur brodda af samtölum, lyklaborðsglamri og símtölum í kring, en þú heyrir áfram þegar einhver talar við þig. Fyrir dýpri vinnufrið í lengri lotum er Quiet 2 betri, og Switch 2 leysir hvorttveggja því þú snýrð hringnum og skiptir um dempun eftir því hvað þú ert að gera.

Á fundum og í símtölum

Engage 2 er stillt á raddir og hentar á fundum. Quiet 2 dempar meira og getur gert það erfiðara að fylgjast með. Eitt kemur á óvart í fyrsta sinn: þín eigin rödd hljómar hærra í höfðinu þegar eyrun eru þétt. Flestir venjast því á nokkrum mínútum.

Við nám og lestur

Quiet 2 er algengasta valið fyrir próflestur. 24 dB dempun gerir bókasafn, lest eða heimili að nothæfu vinnurými, og tappinn er mjúkur nóg til að þola margra tíma lotur. Loop koma ekki í stað þess að finna rólegan stað — þau lækka einfaldlega það sem eftir stendur.

Hávaði heima

Engage 2 er oft kölluð „foreldra-Loop" af ástæðu. Hún dempar 16 dB, sem tekur mesta broddinn af skræk og látum, en þú heyrir áfram hvað börnin segja og hvort eitthvað er að. Engage 2 Plus fylgir Loop Mute sem hækkar dempunina upp í 25 dB þegar þú þarft næði í skamman tíma.

Heilan vinnudag?

Já, Loop eru ætluð til notkunar yfir langan tíma og sílikonið er mjúkt. Flestir taka samt pásu öðru hvoru til að hvíla eyrun. Finnirðu fyrir þrýstingi eftir nokkra klukkutíma er tappinn líklega of stór — prófaðu næstu stærð fyrir neðan.

Um heilsufullyrðingar

Við seljum Loop sem heyrnarhlífar sem lækka hljóðáreiti. Við fullyrðum ekki að þau meðhöndli ADHD, einhverfu, skynúrvinnsluvanda eða nokkurt annað ástand, og þau koma ekki í stað mats eða meðferðar fagfólks. Margir sem eru viðkvæmir fyrir áreiti lýsa gagni af þeim, og það er allt og sumt sem við segjum um það.

Vörurnar sem þetta á við um

Quiet 2 - fyrir betri einbeitingu og svefn

Quiet 2 - fyrir betri einbeitingu og svefn

(18)

7,990 kr

Engage Loop 2 - fyrir daglegt líf

Engage Loop 2 - fyrir daglegt líf

(22)

Frá 7,990 kr

Engage Loop Plus 2

Engage Loop Plus 2

(2)

9,490 kr

Switch 2, 3 in 1 Loop - allir í einum!

Switch 2, 3 in 1 Loop - allir í einum!

(46)

Frá 12,990 kr

Algengar spurningar

Quiet 2 með 24 dB dempun. Hún lækkar bakgrunnshljóð nógu mikið til að þau hætti að trufla og er mjúk nóg fyrir langar lotur. Ef þú þarft að heyra í fólki inn á milli hentar Engage 2 með 16 dB betur.

Engage 2 er algengasta valið. Hún dempar 16 dB og tekur broddinn af samtölum og skarkala, en þú heyrir áfram þegar einhver ávarpar þig. Switch 2 er góður kostur ef þú vilt geta skipt yfir í meiri dempun í djúpum vinnulotum.

Já, veldu þá Engage 2 sem er stillt á raddir. Quiet 2 dempar meira og getur gert það erfiðara að fylgjast með. Athugaðu að þín eigin rödd hljómar hærra í höfðinu fyrstu mínúturnar; það venst fljótt.

Nei, þú heyrir áfram. Loop lækka hljóð í stað þess að loka á það. Engage 2 er næmust á raddir af þeim gerðum sem við seljum og hentar því best þar sem þú þarft að vera viðbragðsfær.

Ekki í gegnum þau — Loop eru eyrnatappar, ekki heyrnartól. Sumir nota þau undir heyrnartólum sem liggja yfir eyrað til að dempa umhverfið enn frekar, en þá þarf að hækka í tónlistinni og það vinnur gegn tilganginum.

Við gerum engar fullyrðingar um það. Loop eru heyrnarhlífar sem lækka hljóðáreiti, ekki meðferð við neinu ástandi. Ef þú ert að leita lausna vegna greiningar eða einkenna áttu samtalið við fagfólk sem þekkir þig.

Meira um Loop