Loop eyrnatappar í rósagulli á bláum bakgrunni
Loop eyrnatappar í rósagulli á bláum bakgrunni

Samanburður

Loop samanburður

Allar gerðir hlið við hlið: dempun, notkun og hvað hentar hverjum aðstæðum.

Stysta svarið: Loop Dream dempar mest (27 dB) og er fyrir svefn. Quiet 2 (24 dB) er fyrir einbeitingu og ró. Experience (17 dB) er fyrir tónlist. Engage 2 (16 dB) er fyrir samtöl. Switch 2 sameinar þrjár stillingar (20/23/26 dB) í einum tappa.

Allar gerðir hlið við hlið

Gerð Dempun (SNR) Best fyrir Samtöl Svefn Tónlist
Engage 2 16 dB Daglegt líf, fjölmenni Mjög gott Of lítil dempun Í lagi
Engage 2 Plus 16 dB · 25 dB með Mute Daglegt líf með möguleika á næði Mjög gott Gott með Mute Í lagi
Experience 17 dB Tónleikar og viðburðir Gott Of lítil dempun Mjög gott
Experience 2 Plus 17 dB · +3 dB með Mute Háværari tónleikar Gott Of lítil dempun Mjög gott
Switch 2 20 / 23 / 26 dB Allt í einum tappa Gott í Engage-stillingu Gott í Quiet-stillingu en stór og hörð til að sofa með Gott í Experience-stillingu
Quiet 2 24 dB Einbeiting, ferðalög, svefn Takmarkað Mjög gott Takmarkað
Loop Dream 27 dB Svefn Takmarkað Best Takmarkað

Dempunartölurnar eru uppgefin SNR-gildi frá Loop. Mat á notkun er okkar eigið, byggt á því hvernig hver gerð er stillt og hvað viðskiptavinir okkar segja.

Quiet 2 eða Engage 2?

Þetta er algengasti samanburðurinn og svarið er einfalt. Quiet 2 dempar 24 dB og lokar á umhverfið — veldu hana fyrir svefn, lestur, einbeitingu og ferðalög. Engage 2 dempar 16 dB og heldur þér inni í samtalinu — veldu hana fyrir fjölskyldulíf, opin vinnurými og fjölmenni. Átta desíbela munur hljómar lítill en er það ekki: Quiet lokar á mannamál, Engage gerir það ekki.

Loop Dream eða Quiet 2 fyrir svefn?

Dream dempar meira (27 dB á móti 24 dB) og tapparnir eru úr memory foam sem mótast að eyranu og situr flatur undir kodda. Quiet 2 er mýkri í gegn, ódýrari og nýtist líka á daginn. Ef svefninn er eina ástæðan velurðu Dream. Ef þú vilt eitt par sem gerir hvorttveggja velurðu Quiet 2.

Engage 2 eða Engage 2 Plus?

Sami tappi, sama dempun: 16 dB. Munurinn er að Plus kemur með Loop Mute í pakkanum, sem smellur framan á og hækkar dempunina upp í 25 dB. Þú færð þannig tvær stillingar í einni vöru — opið fyrir samtöl, lokað fyrir næði. Ef þú skiptir oft á milli aðstæðna sama dag borgar Plus sig.

Experience eða Experience 2 Plus?

Báðar dempa 17 dB og eru stilltar á tónlist. Plus fylgir Loop Mute sem bætir við 3 dB, auk memory foam tappa til viðbótar við sílikontappana. Ef þú ferð á stóra tónleika eða stendur nálægt hátölurum er Plus öruggara val.

Switch 2 eða tvö sérhæfð pör?

Switch 2 gefur þrjár stillingar í einum tappa og hentar þeim sem fer á milli vinnu, tónleika og svefns sama daginn. Á móti kemur að Loop Dream dempar meira fyrir svefn en Switch nær, og tvö sérhæfð pör geta verið þægilegri ef annað á að liggja á náttborðinu og hitt í töskunni. Switch er valið þegar þú vilt eitt par sem gerir allt.

Hvað með börn?

Loop fyrir börn dempa allt að 16 dB og eru fyrir börn frá sex ára aldri, með töppum í stærðum XS til M. Fyrir 1–4 ára mælum við með Loop Cocoon eyrnahlífum sem dempa allt að 25 dB. Lesa nánar →

Hvað kosta þær?

Engage 2, Experience og Quiet 2 eru á sama grunnverði og eru ódýrastar. Plus-útgáfurnar og Loop Dream liggja þar fyrir ofan og Switch 2 er dýrust enda þrír tappar í einum. Verð breytast, svo skoðaðu alltaf núgildandi verð á Loop vörusíðunum.

Vörurnar sem þetta á við um

Loop Dream - fyrir betri svefn

Loop Dream - fyrir betri svefn

(24)

10,990 kr

Quiet 2 - fyrir betri einbeitingu og svefn

Quiet 2 - fyrir betri einbeitingu og svefn

(18)

7,990 kr

Switch 2, 3 in 1 Loop - allir í einum!

Switch 2, 3 in 1 Loop - allir í einum!

(46)

Frá 12,990 kr

Engage Loop 2 - fyrir daglegt líf

Engage Loop 2 - fyrir daglegt líf

(22)

Frá 7,990 kr

Experience Loop - fyrir tónlist og viðburði

Experience Loop - fyrir tónlist og viðburði

(11)

Frá 7,990 kr

Algengar spurningar

Loop Dream með 27 dB (SNR). Næst kemur Switch 2 sem nær 26 dB í Quiet-stillingu, og þar á eftir Quiet 2 með 24 dB. Engage 2 og Experience dempa minnst, 16 og 17 dB, og eru hugsaðar til að halda röddum og tónlist skýrum.

Já, meiri en talan gefur til kynna. Desíbelskvarðinn er lograkvarði, svo átta desíbel til viðbótar skipta verulegu máli í upplifun. Við 16 dB heyrirðu enn samtöl nokkuð skýrt. Við 24 dB hættirðu að greina orðaskil og umhverfið verður að dauf bakgrunnsniði.

Loop Dream og Switch 2 seljast mest hjá okkur, og Engage 2 þar á eftir. Það endurspeglar einfaldlega að svefn og sveigjanleiki eru algengustu ástæðurnar fyrir kaupunum. Sjá mest seldu Loop vörurnar.

Froðutappar dempa hátíðni miklu meira en lágtíðni, svo hljóðið verður dumbt og skýrleiki hverfur, og þeir endast örfá skipti. Loop dempa jafnar yfir tíðnisviðið svo raddir og tónlist halda lögun sinni, og þau eru endurnýtanleg með skiptanlegum töppum.

Heyrnartól með virkri hljóðdeyfingu nota rafhlöðu og hljóðnema og spila tónlist. Loop eru óvirk, þurfa enga hleðslu, eru lítil og má sofa með þeim. Heyrnartól taka betur á stöðugum vélarhávaða; Loop henta betur í daglega notkun og svefn.

Sílikontapparnir fyrir Engage, Experience, Quiet og Switch eru af sömu gerð og ganga á milli. Loop Dream notar aðra tappa úr memory foam sem ganga ekki á hinar gerðirnar. Veldu því rétta vöru þegar þú kaupir auka tappa.

Meira um Loop