Kona í lest lagar Loop Switch 2 eyrnatappa í eyra
Kona í lest lagar Loop Switch 2 eyrnatappa í eyra

Leiðbeiningar

Hvaða Loop hentar mér?

Veldu eftir því hvað þú vilt dempa — svefn, einbeitingu, samtöl eða tónlist.

Stysta svarið: veldu Loop eftir því hvað þú vilt dempa. Fyrir svefn er Loop Dream mest dempandi. Fyrir einbeitingu og ró er Quiet 2. Fyrir samtöl í hávaða er Engage 2. Fyrir tónleika er Experience. Og ef þú vilt eitt par sem gerir allt er Switch 2 svarið.

Byrjaðu á einni spurningu: viltu ró eða viltu vera með?

Allt valið á Loop snýst um þetta. Sumar gerðir eru hannaðar til að loka á umhverfið svo þú náir ró. Aðrar eru hannaðar til að lækka áreitið en halda þér inni í samtalinu. Dempunin segir þetta nokkuð skýrt: því hærri sem SNR-talan er, því meira lokast á umhverfið.

Ég vil sofa betur

Loop Dream. Hún dempar 27 dB (SNR), mest af öllum gerðunum sem við seljum, og tapparnir eru úr memory foam sem mótast að eyranu. Tappinn situr flatur svo koddinn þrýstir ekki á hann þegar þú sefur á hliðinni. Quiet 2 með 24 dB er ódýrari valkostur sem nýtist líka á daginn.

Lesa meira um Loop fyrir svefn →

Ég vil minnka truflandi hávaða og ná einbeitingu

Quiet 2. 24 dB dempun lækkar bakgrunnshljóð nógu mikið til að þú hættir að taka eftir þeim, og tappinn er allur úr mjúku sílikoni svo hann þolir langar lotur. Þetta er algengasta valið fyrir próflestur, heimavinnu og ferðalög.

Lesa meira um Loop fyrir fókus →

Ég vil geta heyrt í fólki

Engage 2. Hún dempar 16 dB og er stillt á raddir, svo samtöl haldast skýr á meðan skarkalinn lækkar. Þetta er gerðin fyrir opin vinnurými, fjölskyldulíf, fjölmenni og verslanir. Engage 2 Plus fylgir Loop Mute sem hækkar dempunina upp í 25 dB þegar þú þarft næði í skamman tíma.

Ég fer mikið á tónleika

Experience. 17 dB dempun sem dreifist jafnt yfir tíðnisviðið, svo tónlistin heldur lögun sinni í stað þess að verða dumb eins og með froðutöppum. Experience 2 Plus bætir við Loop Mute fyrir háværari rými.

Lesa meira um Loop fyrir tónleika →

Ég er að kaupa fyrir barn

Frá sex ára aldri: Loop fyrir börn, sem dempa allt að 16 dB og koma með töppum í stærðum XS til M. Fyrir 1–4 ára mælum við með eyrnahlífum frekar en töppum: Loop Cocoon dempa allt að 25 dB og sitja á höfðinu með stillanlegri ól.

Lesa meira um Loop fyrir börn →

Ég veit ekki — aðstæðurnar eru margar

Switch 2. Einn tappi með þremur stillingum: 20 dB fyrir samtöl, 23 dB fyrir tónlist og 26 dB fyrir ró. Þú snýrð hringnum til að skipta. Þetta er öruggasta fyrsta parið ef þú ert að kaupa Loop í fyrsta sinn og veist ekki hvar þú lendir.

Yfirlit yfir dempun

Gerð Dempun (SNR) Hugsuð fyrir
Engage 2 16 dB Samtöl, fjölmenni, fjölskyldulíf
Engage 2 Plus 16 dB · 25 dB með Mute Sama, en með möguleika á næði
Experience 17 dB Tónleikar og viðburðir
Experience 2 Plus 17 dB · +3 dB með Mute Háværari tónleikar
Switch 2 20 / 23 / 26 dB Allt í einum tappa
Quiet 2 24 dB Einbeiting, ferðalög, svefn
Loop Dream 27 dB Svefn
Loop fyrir börn allt að 16 dB Börn 6–12 ára
Loop Cocoon allt að 25 dB Börn 1–4 ára (eyrnahlífar)

Sjá ítarlegri samanburð á Loop gerðum →

Þrennt sem fólk gleymir

Stærðin skiptir meira máli en gerðin. Ef tappinn þéttir ekki alveg hrynur dempunin, sama hversu hátt SNR-gildið er. Byrjaðu á M og farðu upp eða niður.

Engin gerð lokar alveg. Þú heyrir áfram vekjaraklukku, dyrabjöllu og barn sem kallar — bara lægra.

Tapparnir eru rekstrarvara. Loop mælir með að skipta um sílikontappana á þriggja til sex mánaða fresti.

Vörurnar sem þetta á við um

Loop Dream - fyrir betri svefn
Loop Dream í Lilac – fjólubláir svefneyrnatappar í hvítu hulstri

Loop Dream - fyrir betri svefn

(24)

10,990 kr 9,342 kr
Quiet 2 - fyrir betri einbeitingu og svefn
Loop Quiet 2 eyrnatappar í hvítu hulstri, með auka töppum í nokkrum stærðum í umbúðunum

Quiet 2 - fyrir betri einbeitingu og svefn

(18)

7,990 kr 6,792 kr
Engage Loop 2 - fyrir daglegt líf
Loop Engage 2 í Dusk – dökkgráir eyrnatappar í gráu hulstri

Engage Loop 2 - fyrir daglegt líf

(22)

7,990 kr Frá 6,792 kr
Experience Loop - fyrir tónlist og viðburði
Loop Experience í Silver í svörtu hulstri

Experience Loop - fyrir tónlist og viðburði

(11)

7,990 kr Frá 6,792 kr
Switch 2, 3 in 1 Loop - allir í einum!
Loop Switch 2 í Emerald í dökkgrænu hulstri

Switch 2, 3 in 1 Loop - allir í einum!

(46)

12,990 kr Frá 11,042 kr

Algengar spurningar

Byrjaðu á einu. Flestir komast að því eftir nokkrar vikur hvort þeir þurfi aðra gerð líka. Yfirleitt eitt par fyrir daginn og annað fyrir nóttina. Ef þú veist þegar að þú þarft hvorttveggja er Switch 2 ódýrari leið en tvö pör, því hann gefur þrjár stillingar í einum tappa.

Já, flestir gera það. Switch 2 er beinlínis hannaður fyrir það með þremur stillingum. Af sérhæfðu gerðunum er Engage 2 sveigjanlegust fyrir daglegt líf, en hún dempar ekki nóg fyrir þá sem eiga erfitt með svefn vegna hávaða.

Engage 2 er stillt á raddir og dempar 16 dB, svo samtöl haldast skýr. Experience dempar 17 dB og er stillt á tónlist svo hljómurinn helst heill. Munurinn liggur ekki í dempuninni heldur í því hvaða tíðnum er hleypt í gegn.

Plus-útgáfunum fylgir Loop Mute, lítill aukahlutur sem smellur inn í hringinn á tappanum  og eykur dempunina. Engage 2 Plus fer úr 16 dB í 25 dB með Mute og Experience 2 Plus bætir við 3 dB. Þú tekur Mute af þegar þú vilt heyra betur.

Einnig fylgja memoryfoam tappar aukalega við sílikon tappana sem aðlagast betur að eyranu

Byrjaðu á M, sem flestum passar. Fjórar stærðir fylgja: XS, S, M og L. Rétt stærð þéttir án þess að þrýsta, og þú finnur greinilegan mun á hljóði um leið og tappinn fer inn. Þú mátt nota sitthvora stærðina í hvoru eyra.

Hjá HTL, bæði á htl.is og í versluninni í Hátúni 12, 105 Reykjavík. Við kaupum beint frá Loop og sendum um allt land með Dropp og þú getur sótt pöntunina í verslunina.

Meira um Loop