Loop Dream - fyrir betri svefn
4.64
)10,990 kr
Til á lager
ATH orginal vara keypt beint frá Loop
Undirbúðu þig fyrir rólegasta svefninn með Loop Dream eyrnatöppunum. Upplifðu öfluga hljóðdempun og ótruflaðar nætur.
Tapparnir eru úr memory foam sem gerir þá enn þægilegri og aðlagast að eyranu þínu enn betur - Mælum með að horfa á vídjóið sem er hér við, því halda þarf tappanum í eyranu í 5 sec meðan hann aðlagast.
- 27 dB (SNR) hljóðdempun til að draga úr næturhljóðum
- Hannað til að sitja þægilega í eyrunum alla nóttina, jafnvel þegar sofið er á hliðinni.
- Fjórar mismunandi stærðir eyrnatappa fyrir fullkominn passa, jafnvel í minni eyrum.
- Gerð úr endingargóðu sílikoni svo þú getir sofið rótt í nótt eftir nótt.
- Vottuð heyrnarvernd - Verndar eyrun þín gegn skaðlegum hávaða.
- Hulstrið er gert svo auðveldara sé fyrir þig að leggja þá frá þér beint í hulstrið eftir nóttina.
- Það fylgja með XS - S - M & L tappar svo þú ættir að finna hina fullkomnu stærð fyrir þig. Einnig fylgja með "dobble" tips XS-S-M-L
- Við seljum auka tappa framan á Loop Dream - Loop mælir með 100 nóttum áður en það þarf að skipta um fremsta hlutann fyrir bestu virkni.
"Ég hef prófað allar Loop gerðirnar – Engage, Experience, Quiet, og Switch – og hreint út sagt, þetta gætu verið nýju uppáhalds eyrnatapparnir mínir. Þeir eru svo mjúkir og þægilegir. Ég sef alltaf á hlið og átti ég í erfiðleikum með að nota Quiet eyrnatappana til að sofa, en ég gleymi alveg þessum þegar ég set þá í."
Við sendum með Dropp um allt land. Sendingarkostnaður reiknast í greiðsluferli eftir staðsetningu.
Þú getur líka valið að sækja pöntunina í verslun okkar í Hátúni 12, 105 Reykjavík.
Um skil og endurgreiðslur gilda skilmálar HTL. Hafðu samband í síma 518 6000 eða á info@htl.is og við aðstoðum þig.
Örugg greiðsla
Greitt með korti í öruggri greiðslugátt Shopify.
Berðu saman Loop
Allar gerðir sem við eigum á lager, hlið við hlið. Hljóðdempun er eins og hún er gefin upp í vörulýsingum okkar.
Color
Color
Color
Color
Color
Algengar spurningar um þessa vöru
Svefn. Hún dempar 27 dB (SNR), mest af öllum Loop gerðum, og tapparnir eru úr memory foam sem situr flatur í eyranu. Þess vegna virkar hún á hliðinni, þar sem koddinn þrýstir ekki á hana. Lesa meira um Loop fyrir svefn.
Já, hún er beinlínis hönnuð fyrir það. Tappinn stendur ekki út úr eyranu heldur situr flatur. Finnirðu fyrir þrýstingi gegn koddanum er stærðin yfirleitt of stór — prófaðu næstu stærð fyrir neðan.
Togaðu eyrað aftur og upp, snúðu tappanum rólega inn og haltu honum inni í um fimm sekúndur meðan memory foam efnið þenst út. Sleppirðu of snemma nærðu ekki fullri dempun — það er algengasta ástæðan fyrir því að fólk finnur lítinn mun fyrstu nóttina.
Já, en lægra. Loop lækka hljóð í stað þess að loka á þau. Margir hækka í klukkunni fyrstu næturnar eða nota titring í síma eða úri til öryggis. Prófaðu heima áður en þú treystir á þær fyrir mikilvægan morgun.
Fjórar stærðir af memory foam töppum fylgja: XS, S, M og L. Byrjaðu á M. Hulstur fylgir líka. Auka tappar fást sér og Loop mælir með að skipta um þá á þriggja til sex mánaða fresti.
Memory foam tapparnir þola ekki bleyti. Taktu þá af og þurrkaðu varlega með rökum klút, án þvottaefnis. Hringinn þurrkar þú líka með rökum klút. Láttu allt þorna alveg áður en þú setur saman. Allar leiðbeiningar.
